Stefnt er á að halda íbúafund þann 29. apríl - staðsetning og tími auglýst síðar
Tillaga að athugasemd til Reykjavíkurborgar
Ég mótmæli harðlega fyrirhuguðum breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sem fela í sér þéttingu byggðar á grænu svæði við Borgaveg í Grafarvogi. Tillögurnar eru vanhugsaðar, í ósamræmi við eðli hverfisins og ganga gegn meginmarkmiðum sjálfbærrar borgarþróunar. Áformin ógna jafnframt lífsgæðum barnafjölskyldna í hverfinu.
Skólainnviðir
Þétting byggðar við Borgaveg felur í sér fjölgun íbúa án þess að nokkur styrking innviða fylgi með. Leik- og grunnskólar í Grafarvogi eru þegar fullsettir og biðlistar til staðar, eins og dæmin sanna í öðrum hverfum hverfisins. Fjölgun íbúða á svæðinu án þess að bæta við leik- eða grunnskólaplássi veldur óásættanlegu álagi á menntakerfið og frístundastarf barna, og mun leiða til þrengsla, lægri þjónustugæða og minna öryggis fyrir börnin í hverfinu. Börn munu þurfa að ferðast milli hverfa eftir leikskólaplássum og fjölskyldur missa tengsl við nærumhverfi sitt.
Ljóst er að uppbygging við Borgaveg mun bæta enn frekar álag á Rimaskóla sem nú þegar er fullsetinn, og eru þær forsendur byggðar á því að nú þegar sækja börn búsett við Móaveg Rimaskóla.
Samgönguinnviðir
Vegakerfið í kringum Borgaveg og Móaveg er nú þegar undir miklu álagi og ekki hannað fyrir aukna bílaumferð. Fyrirhuguð fjölbýlishús við Borgaveg munu auka þunga umferð í þröngu og illa skipulögðu umhverfi, án þess að lagfæringar fylgi með. Sérstakar áhyggjur eru uppi um skert öryggi gangandi vegfarenda og barna sem eiga leið í og úr skóla, þar sem nú þegar er lítið um stýringar og öryggisbúnað við götur og gatnamót.
Samkvæmt þeim teikningum sem liggja fyrir virðist aðeins gert ráð fyrir takmörkuðum fjölda bílastæða fyrir íbúa – og engum gestastæðum. En gert er ráð fyrir að byggja 29 íbúðir en eingöngu 24 bílastæði. Í hverfi þar sem þegar er skortur á stæðum mun þetta óhjákvæmilega leiða til þess að íbúar nýju byggðarinnar leggja í stæði sem tilheyra öðrum eða fylla nærliggjandi götur. Þetta er átroðningur gagnvart íbúum sem nú þegar búa á svæðinu, brýtur gegn réttlátri meðhöndlun og skapar dagleg vandamál og árekstra. Má þar vísa í viðvarandi bílastæðavandamál sem þegar er til staðar við Móaveg og þeim átroðningi sem það hefur ollið íbúum sem fyrir voru.
Öryggi barna verður að njóta vafans. Því krefjumst við þess að Reykjavíkurborg taki alvarlega ábyrgð sína á að tryggja öruggt umhverfi í kringum skóla og fjölskyldubyggð og endurskoði áform um uppbyggingu við Borgaveg í ljósi þessa.
Við höfnum þessari aðferðafræði og ítrekum að bílastæði okkar núverandi íbúa eru gerð fyrir okkur og gesti okkar, ekki nýja íbúa hverfisins.
Græn svæði
Svæðið við Borgaveg er eitt af síðustu opnu, grænu svæðunum í nágrenni Dísaborga og Móavegar. Þar hefur verið gróðursett, gengið og safnast saman í frítíma íbúa. Með þessari uppbyggingu hverfur þetta svæði alfarið og ásýnd hverfisins tekur óafturkræfum breytingum og mikilvægt andrými fyrir íbúa hverfur samhliða.
Skuggavarp og útsýnisskerðing
Fyrirhuguð byggð myndi rýra að miklu leyti það víðáttuútsýni sem íbúar hverfisins njóta í dag. Útsýni er ekki lúxus heldur hluti af daglegum lífsgæðum sem íbúar hafa byggt búsetu sína á. Svæðið er jafnframt vinsæll samkomustaður á viðburðum eins og áramótum, þar sem útsýni yfir borgina hefur dregið fólk saman í samfélagslegum tilgangi. Þessar byggingar myndu setja enda á slíka notkun og hafa bein áhrif á lífsgæði og samfélagstengsl.
Ósamræmi við nærliggjandi byggð
Svæðið við Borgaveg er óbyggt og í dag hluti af opinni og grænni ásýnd hverfisins. Reiturinn við Borgaveg er ekki innbyggður – þar er ekkert byggt í dag – og er í nálægð við núverandi fjölbýli í Dísaborgum. Hins vegar er fyrirséð að fyrirhuguð uppbygging verði mun þéttari, hærri og með miklu fleiri íbúðum en umhverfið þolir. Slíkt skapar ósamræmi í ásýnd og gerir lítið úr þeirri ró og víðáttu sem íbúar sóttu í og vilja varðveita.
Að koma þar fyrir þéttum fjölbýlishúsum í nokkrum hæðum stríðir gegn byggðamynstri og mun gjörbreyta yfirbragði og andrúmslofti svæðisins. Íbúar keyptu fasteignir sínar í trausti þess að þetta friðsæla umhverfi yrði virt og varðveitt.
Langur framkvæmdatími og óþægindi á framkvæmdatíma
Gera má ráð fyrir að framkvæmdir í hverfinu muni standa yfir í nokkur ár og valda íbúum ónæði og óþægindum á framkvæmdatíma. Framkvæmdunum mun fylgja hávaði enda er til að mynda ljóst að fara þurfi í ítarlegar jarðvegsframkvæmdir. Þessu mun einnig fylgja umferð stórra tækja og vinnuvéla og rykmengun enda er svæðið að miklu leyti berskjaldað fyrir hinum ýmsu vindáttum. Hér yrðu gröfur, hér yrðu vörubílar, hér yrðu steypubílar, hér yrðu hljóð sem tengjast nýbyggingum ásamt óásættanlegri umferð í langan tíma. Þetta mun draga verulega úr ásýnd hverfisins og lífsgæðum íbúa. Þessu til viðbótar má gera ráð fyrir töluverðu raski til að tengja hinar nýju byggingar við vatns- og fráveitu, rafmagn og aðra sambærilega innviði. Auk þess er þessi reitur staddur á klöpp og mun það valda verulegu ónæði fyrir aðliggjandi byggð, þegar byrjað verður að sprengja fyrir nýrri byggð.
Eignaréttur rýrður – réttur til skaðabóta
Íbúar höfðu réttmætar væntingar til þess, þegar þeir ákváðu að kaupa íbúðarhúsnæði sitt, að hverfið væri fullmótað og fullbyggt. Að minnsta kosti máttu þeir ekki vænta þess að ráðist yrði í svo viðamiklar breytingar af því tagi sem hér er boðað með tilheyrandi skerðingu á lífsgæðum og eignarrétti.
Þær hugmyndir sem settar hafa verið fram í áformum borgarinnar munu koma til með að rýra verðmæti eigna íbúa í Rima- og Borgahverfi, þ.m.t. mun útsýni skerðast og það verulega í sumum tilvikum.
Jafnframt skal tekið fram að þó nokkur dæmi eru fyrir því að sveitarfélög séu skaðabótaskyld gagnvart íbúum sveitarfélagsins vegna þvílíkra breytinga, sbr. 1. mgr. 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bætur samkvæmt fyrrnefndu ákvæði skulu miðaðar við rýrnun á verðmæti fasteignar, líkt og staðfest hefur verið í dómaframkvæmd Hæstaréttar.
Með fyrirætlunum sínum í Borgahverfi er borgin að fórna meiri hagsmunum fyrir minni og um leið snúa öllu á hvolf í hverfinu með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á íbúa í hverfinu. Íbúar í hverfinu krefjast þess að halda í þessi einkenni hverfisins og hafna að fullu þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru í breyttu aðalskipulagi Reykjavíkur.
Við sem búum hér í Grafarvogi höfum valið að búa í úthverfi sem einkennist af andrými – ekki í ofmettuðu og þröngu borgarumhverfi sem hæfir betur miðbænum en Grafarvogi.
Að lokum vil ég árétta að þau sjónarmið sem hér hafa komið fram eiga einnig við í stærra samhengi. Ég mótmæli því jafnframt heildaráformum um þéttingu byggðar í Grafarvogi og geri eftirfarandi athugasemdir fyrir hönd hverfisins alls.
Hverfið er eitt það fjölmennasta í borginni og hefur frá upphafi verið skipulagt sem fjölskylduvænt úthverfi með mikla nálægð við bæði ósnortna náttúru og manngerð útivistarsvæði í nærumhverfi. Hér ríkir öflug hverfisvitund og samhent samfélag fólks sem ber umhyggju fyrir nærumhverfi sínu og nágrönnum.
Áform borgarinnar um fjölgun íbúða innan gróins og fullbyggðs hverfis ganga alvarlega að lífsgæðum íbúa. Grunninnviðir eins og leik- og grunnskólar, samgöngur og félagsþjónusta anna varla þeim fjölda sem nú þegar býr í hverfinu – hvað þá þeim sem áformað er að bæta við. Foreldrar þurfa nú þegar til að senda börn sín í leikskóla utan hverfis, og umferðarþungi innan Grafarvogs er orðinn daglegt vandamál.
Þá eru græn svæði – sem eru órjúfanlegur hluti af sérstöðu og lífsgæðum Grafarvogs – í hættu. Þetta eru svæði sem börn nota til leiks, íbúar til útiveru, og gegna lykilhlutverki í andlegri og líkamlegri heilsu fólks. Að taka þessi svæði undir byggð gengur gegn öllum markmiðum um sjálfbæra þróun og heilbrigt borgarumhverfi.
Þéttingaráformin hafa verið sett fram án raunverulegs samráðs við íbúa og kynnt með ófullnægjandi hætti. Hátt í þúsund athugasemdir sem hafa nú þegar borist frá íbúum endurspegla málefnalega, gagnrýna og vel rökstudda andstöðu við áformin.
Vil ég því minna á eftirfarandi:
Grafarvogur hefur þegar vaxið mikið og enn á eftir að bæta við í Gufunesi, Höfða og á Keldnalandi. Samhliða þessari fjölgun hefur innviðauppbygging ekki haldið í við þróunina – hvorki í skóla- og frístundamálum, samgöngum né heilsugæslu. Áformin eru því ekki í takti við getu hverfisins til að taka á móti enn fleiri íbúum.
Skólainnviðir eru þegar sprungnir. Börn komast nú þegar ekki að í leikskólum í hverfinu. Skólar hverfisins hafa ekki svigrúm fyrir alla þessa fólksfjölgun, sumir eru jafnvel fullsetnir. Frístundavist hefur ekki verið tryggð að fullu fyrir alla nemendur í 2.–3. bekk. Engin áform eru um nýja leik- eða grunnskóla þrátt fyrir að fjölga eigi um hundruð íbúa.
Græn svæði sem eiga að hverfa eru andrými íbúa og mörg hver virk útivistarsvæði fyrir börn, fjölskyldur og samfélagið í heild. Rannsóknir sýna að þau eru nauðsynlegur þáttur í andlegri og líkamlegri heilsu, félagslegri samveru og velferð barna og fjölskyldna.
Hver íbúð án uppbyggingar samgönguinnviða eykur hættuna í umferðinni – og bitnar það á börnum, öldruðum og hreyfihömluðum fyrst. Samgönguinnviðir í Grafarvogi eru nú þegar yfir nýtingarmörkum og hafa ekki haldið í við þá miklu fólksfjölgun sem átti sér stað á undanförnum áratugum. Fullvíst er að áformuð íbúafjölgun muni auka álag á götur, gatnamót og gönguleiðir – án þess að nokkrar umbætur séu áætlaðar í takt við þessa aukningu.
Skýrsla starfshóps íbúaráðs frá nóvember 2024 sýnir að:Alvarlegum slysum í hverfinu hefur fjölgað um 5% og öðrum slysum um 27% miðað við tímabilin 2009–2013 og 2019–2023.
Fjöldi ómerktra og ólöglegra gangbrauta brýtur í bága við reglugerðir og skapar beina hættu, sérstaklega við skóla og í íbúagötum.
Börn og unglingar eru í sérstakri hættu, því ástand göngu- og hjólastíga er víða óviðunandi. Víða eru merkingar, lýsing og aðgengi að skóla og frístundum ábótavant, m.a. við Langarima og í Rimahverfi.
Fjölgun íbúða og aukning umferðar mun því ekki aðeins valda aukinni umferð og öngþveiti á götum hverfisins heldur einnig skapa verulega aukna hættu fyrir börn og ungmenni.
Það er ekki aðeins almenningur sem lýsir yfir áhyggjum sínum af þessum áformum. Í sinni umsögn gerir Vegagerðin einnig alvarlegar athugasemdir við skipulagstillöguna. Stofnunin bendir sérstaklega á að við slíka þéttingu í grónu hverfi þurfi að leggja mat á afleiðingar á bílaumferð og almenningssamgöngur og telur að það hafi ekki verið gert með nægilega vönduðum hætti. Umsögnin leggur áherslu á að slíkar breytingar hafi áhrif á umferð á svæðum langt út fyrir einstaka byggingarreiti og að ekki sé nægilega sýnt fram á hvernig tekið verði á auknu álagi á gatnakerfi og samgöngur í heild.
Þéttleiki fyrirhugaðra byggingasvæða er margfaldur miðað við núverandi skipulag og gengur gegn eðli og anda Grafarvogs. Til dæmis er meðalþéttleiki 24,7 íbúðir á hektara í nýjustu tillögum, en meðalþéttleiki Grafarvogs er um 8–11 íbúðir/hektara. Þetta er alls ekki í samræmi við hönnun hverfisins með dreifðri og fjölskylduvænni byggð.
Í áætlunum borgarinnar er gert ráð fyrir að stór hluti nýrra íbúða í Grafarvogi verði félagslegt eða óhagnaðardrifið húsnæði, í samstarfi við félög eins og Félagsbústaði, Búseta og Bjarg. Þrátt fyrir mikilvægi fjölbreyttra húsnæðisforma, veldur svo mikill þungi slíkra íbúða á einum stað hættu á félagslegri einhæfni og misskiptingu milli borgarhluta. Hlutfall félagslegra og óhagnaðardrifinna íbúða í Grafarvogi er nú þegar hærra en í mörgum öðrum hverfum borgarinnar. Það er ekki ásættanlegt að einangra félagslegt og óhagnaðardrifið húsnæði á fáum stöðum í úthverfum. Slík samþjöppun getur grafið undan félagslegri fjölbreytni og samhengi hverfisins.
Það eru aðrir og betri kostir í boði til íbúðauppbyggingar í Reykjavík. Í Reykjavík eru þegar yfir 2.500 tómar íbúðir samkvæmt nýjustu talningu HMS. Næg byggingarsvæði eru í landi borgarinnar í hverfum sem ekki eru fullbyggð í dag.
Ég krefst þess að Reykjavíkurborg endurskoði þessi áform í heild sinni. Það þarf að virða sérstöðu Grafarvogs, vernda græn svæði sem gera hverfið aðlaðandi og lífvænlegt, og leggja áherslu á að styrkja innviði sem nú þegar ná ekki að sinna þörfum íbúanna. Aðeins þannig verður hægt að tryggja sjálfbæra og skynsamlega þróun hverfisins og borgarinnar – til framtíðar.
Ég áskil mér allan rétt til að koma með frekari athugasemdir, andmæli og sjónarmið á síðari stigum málsins, bæði í gegnum opinberar athugasemdir og með öðrum lagalegum og stjórnsýslulegum leiðum.
Þetta á við hvort sem um er að ræða breytingar á deiliskipulagi, grenndarkynningu eða byggingarleyfisferli.
© 2025 - Allur réttur áskilinn


Vefurinn er í eigu og unninn af íbúum í Grafarvogi