Tillaga að athugasemd til Reykjavíkurborgar

Ég mótmæli harðlega fyrirhuguðum breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sem fela í sér verulega þéttingu byggðar í Grafarvogi – sérstaklega á svæðum í og við Rimahverfi; svokölluðu Sóleyjatúni, Rimaflöt, Langarima, Stararima og Borgavegi.

Áformin valda mér verulegum áhyggjum, meðal annars vegna mikils álags á skólainnviði, skerðingar á grænum svæðum og útsýni, aukins umferðarálags og skerts öryggis í umferð, og ekki síst vegna þess hvernig þau ganga gegn yfirbragði og eðli núverandi byggðar í hverfinu.

Í framhaldinu set ég fram athugasemdir við hvern þessara reita sérstaklega, auk sameiginlegrar athugasemdar vegna þéttingar Grafarvogs í heild.

Ég mótmæli þessum áformum af fullri alvöru og áskil mér rétt til að koma með frekari athugasemdir eða sjónarmið á síðari stigum.

Sóleyjarimi

Ég mótmæli harðlega fyrirhuguðum breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sem fela í sér þéttingu byggðar á svokölluðu Sóleyjatúni í Grafarvogi. Þó að nýjasta tillagan feli í sér 52 íbúðir í allt að 2,5 hæðum og án bílastæðahúss, þá stendur óhaggað eftir að framkvæmdin mun:

  • raska grænu svæði sem íbúum var lofað að yrði útivistarsvæði

  • skerða lífsgæði og öryggi barna

  • skapa aukið álag á innviði sem nú þegar eru sprungnir,

  • vera í ósamræmi við núverandi byggð og skipulag.

Skólainnviðir

Í fyrirliggjandi skipulagstillögu Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir mikilli fjölgun íbúða í Rimahverfi, sem er eitt fjölmennasta skólahverfi borgarinnar. Uppbygging á Sóleyjatúni einu mun kalla á fjölda nýrra barna í skóla og leikskóla, en engar áætlanir liggja fyrir um nauðsynlega uppbyggingu skólainnviða.

Í drögum að aðalskipulagsbreytingu frá febrúar 2025 kemur fram:

Spáð er stöðugleika í nemendafjölda í Rimaskóla, líkt og verið hefur í nokkur ár. Ekki er mikið svigrúm til fjölgunar í skólanum og þéttingin gæti valdið nokkurri áskorun“

Ef áætlanir ná fram að ganga munu fjölmörg leik- og grunnskólabörn bætast við Rimahverfið, þar sem ekki er rými fyrir fleiri grunnskólabörn og enn síður fleiri leikskólabörn. Foreldrar í Rimahverfi þurfa margir hverjir að keyra börn sín í leikskóla í öðrum hverfum borgarinnar meðan þau bíða eftir plássi í fullsetnum leikskólum Rimahverfis. Frístundaúrræði Rimaskóla eru nú þegar sprungin og komast ekki öll börn 2. og 3. bekkjar að í frístund.

Það er með öllu óásættanlegt að leggja fram þéttingaráform sem fela í sér augljósa fjölgun barna á svæði þar sem skóla- og leikskólakerfið nær ekki einu sinni utan um núverandi íbúafjölda. Hér er um að ræða skipulagslegan forsendubrest – þegar borgin ályktar um að nýta „svigrúm“ sem ekki er til staðar í raun.

Borgaryfirvöld bera bæði lagalega og siðferðislega ábyrgð á að tryggja að grunnstoðir samfélagsins – leikskóli, grunnskóli og frístund – séu í stakk búnar til að mæta fjölgun íbúa. Ef þessar stoðir eru hunsaðar, verður öll uppbygging í raun reist á rangri forsendu – og það bitnar fyrst og fremst á börnum.

Skuggavarp og útsýnisskerðing

Fyrirhuguð byggð á Sóleyjatúni mun rísa upp fyrir núverandi hús við bæði Sóleyjarima og Smárarima og valda verulegum skuggavarpi á garða og útivistarsvæði í næsta nágrenni. Þetta kemur helst niður á síðdegis- og kvöldsólinni – þeim tíma sem heimili og fjölskyldur nýta garða sína mest. Fyrirhugaðar byggingar verða 7,5 metrar að hæð sem munu valda yfir 50 metra löngum skuggum að hausti til.

Breytingin mun einnig hafa í för með sér alvarlega skerðingu á útsýni margra heimila, einkum þeirra sem hafa notið opins sjónmáls til vesturs og suðurs í gegnum grænt, opið tún. Þetta útsýni – yfir borg, sund og sólarlag – hefur verið hluti af búsetugæðum hverfisins frá upphafi. Nú á að svipta íbúana þessum gæðum.

Það er sérstaklega ámælisvert að borgin auglýsi nýju íbúðirnar sem „útsýnisíbúðir“ á sama tíma og fyrirliggjandi byggð er svipt sínu útsýni. Hér er um að ræða skýra skerðingu á lífsgæðum og réttindum íbúa, þar sem bæði birtuskilyrði og rými dragast verulega saman – í hverfi sem hefur hingað til einkennst af opnu, grænu yfirbragði og friðsælli byggð. 

Græn svæði

Sóleyjatúnið var skilgreint í deiliskipulagi sem útivistarsvæði árið 2003. Það var gert sem hluti af sátt milli íbúa og borgaryfirvalda eftir mikil mótmæli gegn fyrirhuguðum háhýsum á svæðinu; húsin voru lækkuð og útivistarsvæði skilgreint fyrir íbúa. Nú 20 árum síðar ætlar borgin að ganga bak orða sinna og taka útivistarsvæðið.

Sóleyjatúnið er ekki vannýtt svæði. Það er líflegt útivistarsvæði í mikilli notkun barna, fullorðinna og ferfætlinga. Þar fara börn í útikennslu, fjölskyldur spila fótbolta, hundar fá að hlaupa og nágrannar njóta samvista.

Fjölmargir íbúar við Sóleyjarima og Smárarima keyptu heimili sín í trausti þess að Sóleyjatúnið yrði áfram grænt, opið og hluti af útivistarsvæðum hverfisins – í samræmi við skipulag og skýrar yfirlýsingar borgaryfirvalda. Þeir hafa byggt daglegt líf sitt upp við það andrými.

Að snúa nú við þeirri stefnu og byggja yfir túnið er ekki aðeins svik við gefin loforð – heldur óafturkræf skerðing á lífsgæðum. Þegar græn svæði eru tekin undir byggð, eru þau farin - fyrir fullt og allt. Það er ekkert sem kemur í þeirra stað. Slíkar ákvarðanir eru endanlegar og óleiðréttanlegar.

Í stað þess að vernda og rækta þetta samfélagslega rými, er nú boðið upp á þéttingaráform sem skerða útivist, draga úr heilbrigði og ganga gegn eigin markmiðum borgarinnar um sjálfbærni, vistvænt skipulag og bætta lýðheilsu.

Samgönguinnviðir

Sóleyjarimi og Smárarimi eru íbúagötur sem gegna lykilhlutverki í daglegum ferðum barna í og úr Rimaskóla og frístundastarfi. Börn fara þar mikið um gangandi og hjólandi. Þar er líka töluverð bílaumferð – bæði íbúa og foreldra sem aka börnum í skóla. Meðfram Sóleyjatúni liggja göngustígar sem tengja saman byggðina og er mikið nýttur af börnum og fullorðnum á ferð sinni um hverfið. Fyrirhuguð byggð á Sóleyjatúni mun bæta verulega við bílaumferð á svæði sem er nú þegar við mörk burðargetu – með þröngum götum og aðstæðum sem versna á vetrum þegar snjóhreinsun er takmörkuð.

Einungis er gert ráð fyrir einu bílastæði fyrir hverja íbúð og hluti stæðanna verða merkt fötluðum. Ekki er gert ráð fyrir neinum gestastæðum. Reynsla íbúa frá sambærilegum uppbyggingarsvæðum sýnir að skortur á nægjanlegum bílastæðum leiðir óhjákvæmilega til þess að ökutæki eru ýmist lögð í einkastæði nágranna eða upp á gangstéttir og stíga – einmitt þar sem börn eiga að geta gengið örugg. Slíkt hefur þegar sést í Gufunesi, við Móaveg og víðar​.

Foreldrafélag Rimaskóla hefur lýst yfir miklum áhyggjum af áhrifum áforma á öryggi barna og segir m.a.:

„Við lýsum því þungum áhyggjum að núverandi tillögur muni leggja grunnskólabörn í óþarfa hættu á för sinni til og frá skóla.“

Þá er bent á að við vetraraðstæður séu gangstéttir og stígar oft ófærir, sem neyðir börn til að fara út á akbrautir sem verða þá enn hættulegri vegna aukinnar umferðar og takmarkaðs aðgengis.

Hverfið á að vera öruggt – ekki þrengt og áhættusamt. Borgin verður að leggja sitt af mörkum til að tryggja að svo verði áfram.

Ósamræmi við nærliggjandi byggð

Núverandi byggð í kringum Sóleyjatúnið samanstendur af lágreistum einbýlis- og raðhúsum. Hverfisbragur hefur mótast af fjölskylduvænu skipulagi og aðgengi að náttúru og útivist. Fyrirhuguð fjölbýlishús, þó skilgreind sem 2,5 hæðir, rísa yfir núverandi hús og breyta ásýnd hverfisins verulega. Þessi áform samræmast ekki stefnu borgaryfirvalda um að virða „anda og eðli hverfisins“.

Þá má ætla, út frá gögnum borgarinnar og borgarvefsjá, að fyrirhugaður þéttleiki á reitnum sé 45 íbúðir á hektara – sem er margfalt meiri en í byggðinni í kring. Þessi mikli þéttleiki er gjörólíkur nærliggjandi byggð og skapar mikið ósamræmi í byggðinni.

Íbúar keyptu fasteignir sínar í trausti þess að svæðið yrði grænt útivistarsvæði eins og borgin lofaði. Hér er sátt brotin – og heill hverfishluti settur undir þrýsting sem hann var aldrei skipulagður til að bera.

Framkvæmdir og hætta á framkvæmdatíma

Gera má ráð fyrir að framkvæmdir á Sóleyjatúni standi yfir í langan tíma og valdi íbúum miklu raski. Búast má við háværum og umfangsmiklum jarðvegsframkvæmdum, mikilli rykmengun og umferð þungra vinnuvéla og tækja.

Fyrirhugaðar framkvæmdir á Sóleyjatúni eru rétt við Rimaskóla og þar sem fjölmörg börn ganga daglega til og frá skóla og frístund. Umferð stórvirkra vinnuvéla og tækja mun ógna öryggi þessara barna. Í þröngum íbúðagötum eins og Sóleyjarima geta vinnuvélar skapað raunverulega slysahættu, þar sem börn eru berskjölduðust.

Að auki má gera ráð fyrir verulegu raski vegna tengingar nýbygginga við veitur og aðra innviði.

Eignaréttur rýrður – réttur til skaðabóta

Íbúar höfðu réttmætar væntingar til þess, þegar þeir ákváðu að kaupa íbúðarhúsnæði sitt, að hverfið væri fullmótað og fullbyggt. Að minnsta kosti máttu þeir ekki vænta þess að ráðist yrði í svo viðamiklar breytingar af því tagi sem hér er boðað með tilheyrandi skerðingu á lífsgæðum og eignarrétti.

Þær hugmyndir sem settar hafa verið fram í áformum borgarinnar munu koma til með að rýra verðmæti eigna íbúa í Rimahverfi, þ.m.t. mun útsýni skerðast og það verulega í sumum tilvikum.

Jafnframt skal tekið fram að þó nokkur dæmi eru fyrir því að sveitarfélög séu skaðabótaskyld gagnvart íbúum sveitarfélagsins vegna þvílíkra breytinga, sbr. 1. mgr. 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bætur samkvæmt fyrrnefndu ákvæði skulu miðaðar við rýrnun á verðmæti fasteignar, líkt og staðfest hefur verið í dómaframkvæmd Hæstaréttar.

Með fyrirætlunum sínum í Rimahverfi er borgin að fórna meiri hagsmunum fyrir minni og um leið snúa öllu á hvolf í hverfinu með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á íbúa í hverfinu. Rimahverfið er í fullkomnu jafnvægi við stórkostlega ósnortna náttúru og eru þessi svæði nauðsynleg fyrir mikilvægt vistsvæði sem endurspeglast meðal annars í friðlýsingu svæðis sem liggur upp við hverfið. Íbúar í hverfinu krefjast þess að halda í þessi einkenni hverfisins og hafna að fullu þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru í breyttu aðalskipulagi Reykjavíkur.

Rimaflöt / Viðarrimi

Ég mótmæli harðlega fyrirhuguðum breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sem fela í sér þéttingu byggðar við Rimaflöt og Viðarrima í Grafarvogi. Tillögurnar eru vanhugsaðar, í ósamræmi við eðli hverfisins og ganga gegn meginmarkmiðum sjálfbærrar borgarþróunar. Áformin ógna jafnframt lífsgæðum barnafjölskyldna í hverfinu og munu skapa óásættanlegt álag á Rimaskóla og græn svæði sem íbúar treysta á til útivistar.

Skólainnviðir

Rimaskóli og leikskólar í hverfinu eru þegar undir miklu álagi. Foreldrafélag Rimaskóla hefur bent á skort á frístundavist fyrir börn í 2., 3. og 4 bekk og viðvarandi mönnunarvanda (https://skipulagsgatt.is/files/eb6780eb-d851-4fa7-aea1-8aad6724989f). Fjölgun íbúða án samhliða innviðauppbyggingar er óábyrg og brýtur gegn lýðheilsu- og menntastefnu borgarinnar.

Að fjölga íbúðum í Rimahverfi án samhliða uppbyggingar á skóla- og leikskólainnviðum er óábyrgt og í andstöðu við meginmarkmið Aðalskipulags Reykjavíkur, sem leggur áherslu á sjálfbærni, vellíðan og jafnvægi í borgarþróun.

Samgönguinnviðir

Rimaflöt er mikil umferðaræð þar sem samgöngur atvinnubíla og almennings fara saman. Engar lögbundnar gangbrautir eru til staðar, þrátt fyrir slysasögu​. Þétting mun auka umferðarþunga og hættu án þess að samgöngubætur fylgi í kjölfarið. Álag mun aukast á þegar sprungið gatnakerfi með tilheyrandi umferðarhættu og mengun.

Græn svæði

Svæðin við Rimaflöt og Viðarrima eru græn, opin og nýtt af íbúum til leikja, útivistar og gönguferða. Trjágróður meðfram Rimaflöt hefur skapað skjól, dregið úr snjósöfnun og bætt ásýnd svæðisins. Íbúar hafa sinnt þessum svæðum í sjálfboðavinnu um árabil – gróðursett, slegið og hreinsað rusl.

Þétting byggðar á þessum svæðum eyðileggur dýrmætt græn svæði í hverfinu og dregur úr aðgengi barna og eldri borgara að heilnæmri útivist og náttúru. Þessi grænu svæði eru mikilvæg fyrir andlega og líkamlega heilsu og eiga að njóta verndar í samræmi við lýðheilsusjónarmið og sjálfbæra þróun.

Skuggavarp og útsýnisskerðing

Fyrirhuguð byggð við Rimaflöt, með tveggja hæða raðhúsum eða fjölbýli, myndi valda verulegu skuggavarpi og skerða útsýni íbúa í einbýlishúsum og raðhúsum við neðri hluta Viðarrima. Þetta hefur áhrif á birtu í húsum, garðnotkun og eðlilegt næði. Jafnframt dregur þetta úr lífsgæðum og fer gegn þeim væntingum sem fólk hafði þegar það festi kaup á húsnæði sínu.

Útsýni og dagsbirta eru ekki lúxus heldur grunnstoðir lífsgæða sem íbúar hafa rétt á að njóta og byggðu val sitt á hverfinu á. Borgaryfirvöld hafa áður gefið yfirlýsingar um að vernda ásýnd og birtu í eldri byggðum – þessi áform ganga í berhögg við þær yfirlýsingar.

Ósamræmi við nærliggjandi byggð

Fyrirhuguð byggð samanstendur af raðhúsum á tveimur hæðum, en núverandi byggð í grenndinni eru einbýlishús á einni hæð. Slíkar breytingar raska byggðamynstur og yfirbragð hverfisins og hafa neikvæð áhrif á samheldni og ásýnd svæðisins.

Við höfum valið að búa í rólegu úthverfi með lágreistri byggð – við stöndum nú frammi fyrir því að missa þá eiginleika sem einkennt hafa svæðið, byggðar á þeim forsendum sem borgin sjálf lagði upphaflega til grundvallar við skipulagningu hverfisins.

Að fjölga íbúðum í Rimahverfi án samhliða uppbyggingar á skóla- og leikskólainnviðum er óábyrgt og í andstöðu við meginmarkmið Aðalskipulags Reykjavíkur, sem leggur áherslu á sjálfbærni, vellíðan og jafnvægi í borgarþróun.

Eignaréttur rýrður – réttur til skaðabóta

Íbúar höfðu réttmætar væntingar til þess, þegar þeir ákváðu að kaupa íbúðarhúsnæði sitt, að hverfið væri fullmótað og fullbyggt. Að minnsta kosti máttu þeir ekki vænta þess að ráðist yrði í svo viðamiklar breytingar af því tagi sem hér er boðað með tilheyrandi skerðingu á lífsgæðum og eignarrétti.

Þær hugmyndir sem settar hafa verið fram í áformum borgarinnar munu koma til með að rýra verðmæti eigna íbúa í Rimahverfi, þ.m.t. mun útsýni skerðast og það verulega í sumum tilvikum.

Jafnframt skal tekið fram að þó nokkur dæmi eru fyrir því að sveitarfélög séu skaðabótaskyld gagnvart íbúum sveitarfélagsins vegna þvílíkra breytinga, sbr. 1. mgr. 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bætur samkvæmt fyrrnefndu ákvæði skulu miðaðar við rýrnun á verðmæti fasteignar, líkt og staðfest hefur verið í dómaframkvæmd Hæstaréttar.

Með fyrirætlunum sínum í Rimahverfi er borgin að fórna meiri hagsmunum fyrir minni og um leið snúa öllu á hvolf í hverfinu með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á íbúa í hverfinu. Íbúar í hverfinu krefjast þess að halda í þessi einkenni hverfisins og hafna að fullu þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru í breyttu aðalskipulagi Reykjavíkur.

Langirimi / Fífurimi

Ég mótmæli harðlega fyrirhuguðum breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sem fela í sér þéttingu byggðar við Langarima og Fífurima í Grafarvogi. Áformin ógna lífsgæðum barnafjölskyldna í hverfinu og munu skapa óásættanlegt álag á Rimaskóla og græn svæði sem íbúar treysta á til útivistar.

Skólainnviðir

Rimaskóli þjónar stóru svæði og er nú þegar undir miklu álagi og rúmar varla fleiri börn. Foreldrafélag skólans hefur ítrekað bent á að frístundavist getur ekki að fullu sinnt öllum nemendum í 2. og 3. bekk, og að skólinn rúmar varla fleiri börn með tilliti til stærðar bekkja og manneklu í frístundastarfi​.

Að fjölga íbúðum við Langarima og Rimahverfi án þess að styrkja skóla- og leikskólainnviði brýtur gegn öllum faglegum sjónarmiðum í borgarskipulagi. Að fjölga íbúðum án þess að styrkja innviði skólans gengur gegn meginmarkmiðum aðalskipulags og húsnæðisáætlunar Reykjavíkur.

Skuggavarp og útsýnisskerðing

Byggðin sem á að rísa er ofan við núverandi hús og mun valda verulegu skuggavarpi, sérstaklega á síðdegi þegar fjölskyldur nýta garða og útisvæði sín mest. Skuggavarp hefur áhrif á birtu, heilsu og lífsgæði – þetta er mælanlegt tjón sem borgin hefur ekki gert grein fyrir í kynningu. Þessi skerðing mun hafa neikvæð áhrif á virði fasteigna núverandi íbúa.

Græn svæði

Reiturinn sem á að byggja á við Fífurima og Hallsveg er dýrmætt útivistarsvæði – þéttvaxið af sjálfsáðum trjám, móum, lyng- og graslendi. Börn nota þetta svæði til leiks og það er hluti af daglegri útiveru margra fjölskyldna. Slík svæði má ekki skilgreina sem „auð svæði“. Aðgengi og útsýni að svæðinu hefur verið hluti af ákvörðun fólks um að búa hér​. Þau eru andrými, og það er akkúrat það sem borgin á að vernda​.

Samgönguinnviðir

Langirimi er ein af umferðarþyngstu götum Grafarvogs í dag og gegnir lykilhlutverki fyrir alla umferð til og frá Rimaskóla – einum fjölmennasta grunnskóla landsins. Götunni fylgir einnig vinsæll göngustígur sem tengir saman byggðina, leiksvæði, skóla og frístundastarfsemi – og er notaður daglega af fjölda barna, ungmenna og annarra gangandi og hjólandi vegfarenda.

Áform um fjölgun íbúða á svæðinu – án þess að gert sé ráð fyrir samhliða úrbótum á umferðarmannvirkjum – eru stórhættuleg og geta aukið slysahættu verulega. Samkvæmt úttekt starfshóps íbúaráðs Grafarvogs hefur alvarlegum slysum í hverfinu fjölgað og kemur þar sérstaklega fram að skortur á merkingum og göngubrautum við Langarima hafi þegar leitt til slysa​. Það er með öllu óásættanlegt að auka álag á þessa safngötu án þess að tryggja öryggi þeirra sem þar fara um – sérstaklega barna.

Öryggi barna verður að njóta vafans. Því krefjumst við þess að Reykjavíkurborg taki alvarlega ábyrgð sína á að tryggja öruggt umhverfi í kringum skóla og fjölskyldubyggð og endurskoði áform um uppbyggingu við Langarima í ljósi þessa.

Eignaréttur rýrður – réttur til skaðabóta

Íbúar höfðu réttmætar væntingar til þess, þegar þeir ákváðu að kaupa íbúðarhúsnæði sitt, að hverfið væri fullmótað og fullbyggt. Að minnsta kosti máttu þeir ekki vænta þess að ráðist yrði í svo viðamiklar breytingar af því tagi sem hér er boðað með tilheyrandi skerðingu á lífsgæðum og eignarrétti.

Þær hugmyndir sem settar hafa verið fram í áformum borgarinnar munu koma til með að rýra verðmæti eigna íbúa í Rimahverfi, þ.m.t. mun útsýni skerðast og það verulega í sumum tilvikum.

Jafnframt skal tekið fram að þó nokkur dæmi eru fyrir því að sveitarfélög séu skaðabótaskyld gagnvart íbúum sveitarfélagsins vegna þvílíkra breytinga, sbr. 1. mgr. 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bætur samkvæmt fyrrnefndu ákvæði skulu miðaðar við rýrnun á verðmæti fasteignar, líkt og staðfest hefur verið í dómaframkvæmd Hæstaréttar.

Með fyrirætlunum sínum í Rimahverfi er borgin að fórna meiri hagsmunum fyrir minni og um leið snúa öllu á hvolf í hverfinu með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á íbúa í hverfinu. Rimahverfið er í fullkomnu jafnvægi við stórkostlega ósnortna náttúru og eru þessi svæði nauðsynleg fyrir mikilvægt vistsvæði sem endurspeglast meðal annars í friðlýsingu svæðis sem liggur upp við hverfið. Íbúar í hverfinu krefjast þess að halda í þessi einkenni hverfisins og hafna að fullu þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru í breyttu aðalskipulagi Reykjavíkur.

Stararimi

Ég mótmæli harðlega fyrirhuguðum breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sem fela í sér þéttingu byggðar við Stararima í Grafarvogi. Tillögurnar eru vanhugsaðar, í ósamræmi við eðli hverfisins og ganga gegn meginmarkmiðum sjálfbærrar borgarþróunar. Áformin ógna jafnframt lífsgæðum barnafjölskyldna í hverfinu og munu skapa óásættanlegt álag á Rimaskóla og græn svæði sem íbúar treysta á til útivistar.

Skólainnviðir

Rimaskóli þjónar stóru svæði og er nú þegar undir miklu álagi og rúmar varla fleiri börn. Foreldrafélag skólans hefur ítrekað bent á að frístundavist getur ekki að fullu sinnt öllum nemendum í 2. og 3. bekk, og að skólinn rúmar varla fleiri börn með tilliti til stærðar bekkja og manneklu í frístundastarfi​. Biðlistar eru þegar til staðar í leikskólum og frístund, og aðstæður í skólaumhverfinu nálgast þolmörk.

Að fjölga íbúðum í Rimahverfi án þess að styrkja skóla- og leikskólainnviði brýtur gegn öllum faglegum sjónarmiðum í borgarskipulagi. Að fjölga íbúðum án þess að styrkja innviði skólans gengur gegn meginmarkmiðum aðalskipulags og húsnæðisáætlunar Reykjavíkur .Skólar í Grafarvogi, þar á meðal Rimaskóli og nærliggjandi leikskólar, eru þegar að vinna á fullu afköstum og glíma við skort á rými og mannskap.

Samgönguinnviðir

Fyrirhuguð byggð mun auka umferðarþunga í Stararima og nærliggjandi götum sem eru þegar þröngar og illa fallnar til að taka við fjölgun ökutækja. Á þessum slóðum eru fjölmargir gangandi vegfarendur – þar á meðal börn á leið í skóla og frístundir. Aukin bílaumferð og skortur á öruggum gangbrautum og lýsingu eykur hættuna á slysum. Ekki er heldur gert ráð fyrir viðeigandi úrbótum í samgöngukerfinu, né stýringu á flæði umferðar.

Græn svæði

Reiturinn í Stararima er í dag grænt, opið svæði sem gegnir mikilvægu hlutverki fyrir nærumhverfið. Svæðið nýtist til útivistar, gönguferða, leiks og samveru, bæði fyrir börn og fullorðna. Þar er einnig gróður sem veitir skjól og hefur jákvæð áhrif á loftgæði og andlega heilsu. Þétting byggðar á þessum stað myndi ganga á dýrmætt svæði sem þjónar hlutverki langt umfram það sem mætti meta í fermetrum.

Skuggavarp og útsýnisskerðing

Þótt fyrirhuguð byggð í Stararima samanstandi af einbýlishúsum líkt og núverandi byggð, veldur staðsetning þeirra beint fyrir framan núverandi hús verulegri skerðingu á útsýni og dagsbirtu fyrir þá sem fyrir eru. Íbúar sem keyptu eignir sínar í þeirri trú að byggðin væri fullmótuð og að opið svæði héldi áfram að vera hluti af umhverfinu, munu nú horfa á húsveggi þar sem áður var víðátta og birtuflæði.

Útsýni og náttúruleg birta eru mikilvægir þættir í lífsgæðum og fasteignamati. Þetta á sérstaklega við í lágreistri byggð þar sem tilfinning fyrir rými, birtu og nánd við náttúru hefur mikið vægi. Með því að reisa hús svo nálægt og framan við núverandi heimili er verið að skerða þessi lífsgæði, bæði beint og óafturkræft. Slík breyting myndi ekki aðeins rýra útsýni heldur einnig skapa tilfinningu um þrengsli og skerða friðhelgi sem íbúar hafa búið við hingað til.

Sérstaklega þarf að benda á að í slíkum tilvikum – þegar ný byggð er staðsett á milli eldri byggðar og opins svæðis – skapar það meiri áhrif en byggingar í hefðbundnum götufrontalínum. Hér er ekki aðeins verið að bæta við húsum, heldur að loka á það sem margir töldu að væri varanleg hluti af umhverfi sínu.

Ósamræmi við nærliggjandi byggð

Þó fyrirhuguð byggð í Stararima sé á einni hæð og svipi til núverandi einbýlishúsa, er samt um verulegt ósamræmi að ræða þegar litið er til skipulagsheildar og notkunar rýmis. Fyrirhuguð uppbygging gerir ráð fyrir að ný byggð nýtist af sameiginlegum innviðum, þar á meðal bílastæðum sem hingað til hafa verið gestabílastæði og þjónustustæði fyrir núverandi íbúa.

Þetta er bein skerðing á aðstöðu og eignaréttartengdum notum núverandi íbúa, þar sem stæði sem áður voru hluti af samfelldri notkun núverandi byggðar verða teknin undir nýja lóð. Slík tilfærsla er átroðningur á nærumhverfi þeirra sem þar búa og skapar ójafnvægi í aðgengi, bílastæðafjölda og notkunarmöguleikum sameiginlegs svæðis.

Með þessu skapast deilur og aukið álag í hverfi sem hingað til hefur byggst á rólegu, opnu og jafnvægi í notkun innviða. Það gengur þvert gegn því sem kalla má vandaða hverfisþróun og er í raun innbyggt ósamræmi – ekki í útliti byggingar heldur í þeirri not sem nýju húsin krefjast á kostnað þeirra sem fyrir eru.

Öryggi barna verður að njóta vafans. Því krefjumst við þess að Reykjavíkurborg taki alvarlega ábyrgð sína á að tryggja öruggt umhverfi í kringum skóla og fjölskyldubyggð og endurskoði áform um uppbyggingu við Stararima í ljósi þessa.

Við höfnum þessari aðferðafræði og ítrekum að bílastæði okkar núverandi íbúa eru gerð fyrir okkur og gesti okkar, ekki nýja íbúa hverfisins.

Eignaréttur rýrður – réttur til skaðabóta

Íbúar höfðu réttmætar væntingar til þess, þegar þeir ákváðu að kaupa íbúðarhúsnæði sitt, að hverfið væri fullmótað og fullbyggt. Að minnsta kosti máttu þeir ekki vænta þess að ráðist yrði í svo viðamiklar breytingar af því tagi sem hér er boðað með tilheyrandi skerðingu á lífsgæðum og eignarrétti.

Þær hugmyndir sem settar hafa verið fram í áformum borgarinnar munu koma til með að rýra verðmæti eigna íbúa í Rimahverfi, þ.m.t. mun útsýni skerðast og það verulega í sumum tilvikum.

Jafnframt skal tekið fram að þó nokkur dæmi eru fyrir því að sveitarfélög séu skaðabótaskyld gagnvart íbúum sveitarfélagsins vegna þvílíkra breytinga, sbr. 1. mgr. 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bætur samkvæmt fyrrnefndu ákvæði skulu miðaðar við rýrnun á verðmæti fasteignar, líkt og staðfest hefur verið í dómaframkvæmd Hæstaréttar.

Með fyrirætlunum sínum í Rimahverfi er borgin að fórna meiri hagsmunum fyrir minni og um leið snúa öllu á hvolf í hverfinu með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á íbúa í hverfinu. Rimahverfið er í fullkomnu jafnvægi við stórkostlega ósnortna náttúru og eru þessi svæði nauðsynleg fyrir mikilvægt vistsvæði sem endurspeglast meðal annars í friðlýsingu svæðis sem liggur upp við hverfið. Íbúar í hverfinu krefjast þess að halda í þessi einkenni hverfisins og hafna að fullu þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru í breyttu aðalskipulagi Reykjavíkur.

Borgavegur

Ég mótmæli harðlega fyrirhuguðum breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 sem fela í sér þéttingu byggðar á grænu svæði við Borgaveg í Grafarvogi. Tillögurnar eru vanhugsaðar, í ósamræmi við eðli hverfisins og ganga gegn meginmarkmiðum sjálfbærrar borgarþróunar. Áformin ógna jafnframt lífsgæðum barnafjölskyldna í hverfinu.

Skólainnviðir

Þétting byggðar við Borgaveg felur í sér fjölgun íbúa án þess að nokkur styrking innviða fylgi með. Leik- og grunnskólar í Grafarvogi eru þegar fullsettir og biðlistar til staðar, eins og dæmin sanna í öðrum hverfum hverfisins. Fjölgun íbúða á svæðinu án þess að bæta við leik- eða grunnskólaplássi veldur óásættanlegu álagi á menntakerfið og frístundastarf barna, og mun leiða til þrengsla, lægri þjónustugæða og minna öryggis fyrir börnin í hverfinu. Börn munu þurfa að ferðast milli hverfa eftir leikskólaplássum og fjölskyldur missa tengsl við nærumhverfi sitt.

Ljóst er að uppbygging við Borgaveg mun bæta enn frekar álag á Rimaskóla sem nú þegar er fullsetinn, og eru þær forsendur byggðar á því að nú þegar sækja börn búsett við Móaveg Rimaskóla.

Samgönguinnviðir

Vegakerfið í kringum Borgaveg og Móaveg er nú þegar undir miklu álagi og ekki hannað fyrir aukna bílaumferð. Fyrirhuguð fjölbýlishús við Borgaveg munu auka þunga umferð í þröngu og illa skipulögðu umhverfi, án þess að lagfæringar fylgi með. Sérstakar áhyggjur eru uppi um skert öryggi gangandi vegfarenda og barna sem eiga leið í og úr skóla, þar sem nú þegar er lítið um stýringar og öryggisbúnað við götur og gatnamót.

Samkvæmt þeim teikningum sem liggja fyrir virðist aðeins gert ráð fyrir takmörkuðum fjölda bílastæða fyrir íbúa – og engum gestastæðum. En gert er ráð fyrir að byggja 29 íbúðir en eingöngu 24 bílastæði. Í hverfi þar sem þegar er skortur á stæðum mun þetta óhjákvæmilega leiða til þess að íbúar nýju byggðarinnar leggja í stæði sem tilheyra öðrum eða fylla nærliggjandi götur. Þetta er átroðningur gagnvart íbúum sem nú þegar búa á svæðinu, brýtur gegn réttlátri meðhöndlun og skapar dagleg vandamál og árekstra. Má þar vísa í viðvarandi bílastæðavandamál sem þegar er til staðar við Móaveg og þeim átroðningi sem það hefur ollið íbúum sem fyrir voru.

Öryggi barna verður að njóta vafans. Því krefjumst við þess að Reykjavíkurborg taki alvarlega ábyrgð sína á að tryggja öruggt umhverfi í kringum skóla og fjölskyldubyggð og endurskoði áform um uppbyggingu við Borgaveg í ljósi þessa.

Við höfnum þessari aðferðafræði og ítrekum að bílastæði okkar núverandi íbúa eru gerð fyrir okkur og gesti okkar, ekki nýja íbúa hverfisins.

Græn svæði

Svæðið við Borgaveg er eitt af síðustu opnu, grænu svæðunum í nágrenni Dísaborga og Móavegar. Þar hefur verið gróðursett, gengið og safnast saman í frítíma íbúa. Með þessari uppbyggingu hverfur þetta svæði alfarið og ásýnd hverfisins tekur óafturkræfum breytingum og mikilvægt andrými fyrir íbúa hverfur samhliða.

Skuggavarp og útsýnisskerðing

Fyrirhuguð byggð myndi rýra að miklu leyti það víðáttuútsýni sem íbúar hverfisins njóta í dag. Útsýni er ekki lúxus heldur hluti af daglegum lífsgæðum sem íbúar hafa byggt búsetu sína á. Svæðið er jafnframt vinsæll samkomustaður á viðburðum eins og áramótum, þar sem útsýni yfir borgina hefur dregið fólk saman í samfélagslegum tilgangi. Þessar byggingar myndu setja enda á slíka notkun og hafa bein áhrif á lífsgæði og samfélagstengsl.

Ósamræmi við nærliggjandi byggð

Svæðið við Borgaveg er óbyggt og í dag hluti af opinni og grænni ásýnd hverfisins. Reiturinn við Borgaveg er ekki innbyggður – þar er ekkert byggt í dag – og er í nálægð við núverandi fjölbýli í Dísaborgum. Hins vegar er fyrirséð að fyrirhuguð uppbygging verði mun þéttari, hærri og með miklu fleiri íbúðum en umhverfið þolir. Slíkt skapar ósamræmi í ásýnd og gerir lítið úr þeirri ró og víðáttu sem íbúar sóttu í og vilja varðveita.

Að koma þar fyrir þéttum fjölbýlishúsum í nokkrum hæðum stríðir gegn byggðamynstri og mun gjörbreyta yfirbragði og andrúmslofti svæðisins. Íbúar keyptu fasteignir sínar í trausti þess að þetta friðsæla umhverfi yrði virt og varðveitt.

Langur framkvæmdatími og óþægindi á framkvæmdatíma

Gera má ráð fyrir að framkvæmdir í hverfinu muni standa yfir í nokkur ár og valda íbúum ónæði og óþægindum á framkvæmdatíma. Framkvæmdunum mun fylgja hávaði enda er til að mynda ljóst að fara þurfi í ítarlegar jarðvegsframkvæmdir. Þessu mun einnig fylgja umferð stórra tækja og vinnuvéla og rykmengun enda er svæðið að miklu leyti berskjaldað fyrir hinum ýmsu vindáttum. Hér yrðu gröfur, hér yrðu vörubílar, hér yrðu steypubílar, hér yrðu hljóð sem tengjast nýbyggingum ásamt óásættanlegri umferð í langan tíma. Þetta mun draga verulega úr ásýnd hverfisins og lífsgæðum íbúa. Þessu til viðbótar má gera ráð fyrir töluverðu raski til að tengja hinar nýju byggingar við vatns- og fráveitu, rafmagn og aðra sambærilega innviði. Auk þess er þessi reitur staddur á klöpp og mun það valda verulegu ónæði fyrir aðliggjandi byggð, þegar byrjað verður að sprengja fyrir nýrri byggð.

Eignaréttur rýrður – réttur til skaðabóta

Íbúar höfðu réttmætar væntingar til þess, þegar þeir ákváðu að kaupa íbúðarhúsnæði sitt, að hverfið væri fullmótað og fullbyggt. Að minnsta kosti máttu þeir ekki vænta þess að ráðist yrði í svo viðamiklar breytingar af því tagi sem hér er boðað með tilheyrandi skerðingu á lífsgæðum og eignarrétti.

Þær hugmyndir sem settar hafa verið fram í áformum borgarinnar munu koma til með að rýra verðmæti eigna íbúa í Rima- og Borgahverfi, þ.m.t. mun útsýni skerðast og það verulega í sumum tilvikum.

Jafnframt skal tekið fram að þó nokkur dæmi eru fyrir því að sveitarfélög séu skaðabótaskyld gagnvart íbúum sveitarfélagsins vegna þvílíkra breytinga, sbr. 1. mgr. 51. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Bætur samkvæmt fyrrnefndu ákvæði skulu miðaðar við rýrnun á verðmæti fasteignar, líkt og staðfest hefur verið í dómaframkvæmd Hæstaréttar.

Með fyrirætlunum sínum í Borgahverfi er borgin að fórna meiri hagsmunum fyrir minni og um leið snúa öllu á hvolf í hverfinu með tilheyrandi neikvæðum áhrifum á íbúa í hverfinu. Íbúar í hverfinu krefjast þess að halda í þessi einkenni hverfisins og hafna að fullu þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru í breyttu aðalskipulagi Reykjavíkur.

Við sem búum hér í Grafarvogi höfum valið að búa í úthverfi sem einkennist af andrými – ekki í ofmettuðu og þröngu borgarumhverfi sem hæfir betur miðbænum en Grafarvogi.

Grafarvogur

Að lokum vil ég árétta að þau sjónarmið sem hér hafa komið fram eiga einnig við í stærra samhengi. Ég mótmæli því jafnframt heildaráformum um þéttingu byggðar í Grafarvogi og geri eftirfarandi athugasemdir fyrir hönd hverfisins alls.

Hverfið er eitt það fjölmennasta í borginni og hefur frá upphafi verið skipulagt sem fjölskylduvænt úthverfi með mikla nálægð við bæði ósnortna náttúru og manngerð útivistarsvæði í nærumhverfi. Hér ríkir öflug hverfisvitund og samhent samfélag fólks sem ber umhyggju fyrir nærumhverfi sínu og nágrönnum.

Áform borgarinnar um fjölgun íbúða innan gróins og fullbyggðs hverfis ganga alvarlega að lífsgæðum íbúa. Grunninnviðir eins og leik- og grunnskólar, samgöngur og félagsþjónusta anna varla þeim fjölda sem nú þegar býr í hverfinu – hvað þá þeim sem áformað er að bæta við. Foreldrar þurfa nú þegar til að senda börn sín í leikskóla utan hverfis, og umferðarþungi innan Grafarvogs er orðinn daglegt vandamál.

Þá eru græn svæði – sem eru órjúfanlegur hluti af sérstöðu og lífsgæðum Grafarvogs – í hættu. Þetta eru svæði sem börn nota til leiks, íbúar til útiveru, og gegna lykilhlutverki í andlegri og líkamlegri heilsu fólks. Að taka þessi svæði undir byggð gengur gegn öllum markmiðum um sjálfbæra þróun og heilbrigt borgarumhverfi.

Þéttingaráformin hafa verið sett fram án raunverulegs samráðs við íbúa og kynnt með ófullnægjandi hætti. Hátt í þúsund athugasemdir sem hafa nú þegar borist frá íbúum endurspegla málefnalega, gagnrýna og vel rökstudda andstöðu við áformin.

Vil ég því minna á eftirfarandi:

  • Grafarvogur hefur þegar vaxið mikið og enn á eftir að bæta við í Gufunesi, Höfða og á Keldnalandi. Samhliða þessari fjölgun hefur innviðauppbygging ekki haldið í við þróunina – hvorki í skóla- og frístundamálum, samgöngum né heilsugæslu. Áformin eru því ekki í takti við getu hverfisins til að taka á móti enn fleiri íbúum.

  • Skólainnviðir eru þegar sprungnir. Börn komast nú þegar ekki að í leikskólum í hverfinu. Skólar hverfisins hafa ekki svigrúm fyrir alla þessa fólksfjölgun, sumir eru jafnvel fullsetnir. Frístundavist hefur ekki verið tryggð að fullu fyrir alla nemendur í 2.–3. bekk. Engin áform eru um nýja leik- eða grunnskóla þrátt fyrir að fjölga eigi um hundruð íbúa.

  • Græn svæði sem eiga að hverfa eru andrými íbúa og mörg hver virk útivistarsvæði fyrir börn, fjölskyldur og samfélagið í heild. Rannsóknir sýna að þau eru nauðsynlegur þáttur í andlegri og líkamlegri heilsu, félagslegri samveru og velferð barna og fjölskyldna.

  • Hver íbúð án uppbyggingar samgönguinnviða eykur hættuna í umferðinni – og bitnar það á börnum, öldruðum og hreyfihömluðum fyrst. Samgönguinnviðir í Grafarvogi eru nú þegar yfir nýtingarmörkum og hafa ekki haldið í við þá miklu fólksfjölgun sem átti sér stað á undanförnum áratugum. Fullvíst er að áformuð íbúafjölgun muni auka álag á götur, gatnamót og gönguleiðir – án þess að nokkrar umbætur séu áætlaðar í takt við þessa aukningu.
    Skýrsla starfshóps íbúaráðs frá nóvember 2024 sýnir að:

    • Alvarlegum slysum í hverfinu hefur fjölgað um 5% og öðrum slysum um 27% miðað við tímabilin 2009–2013 og 2019–2023.

    • Fjöldi ómerktra og ólöglegra gangbrauta brýtur í bága við reglugerðir og skapar beina hættu, sérstaklega við skóla og í íbúagötum.

    • Börn og unglingar eru í sérstakri hættu, því ástand göngu- og hjólastíga er víða óviðunandi. Víða eru merkingar, lýsing og aðgengi að skóla og frístundum ábótavant, m.a. við Langarima og í Rimahverfi​.

Fjölgun íbúða og aukning umferðar mun því ekki aðeins valda aukinni umferð og öngþveiti á götum hverfisins heldur einnig skapa verulega aukna hættu fyrir börn og ungmenni.
Það er ekki aðeins almenningur sem lýsir yfir áhyggjum sínum af þessum áformum. Í sinni umsögn gerir Vegagerðin einnig alvarlegar athugasemdir við skipulagstillöguna. Stofnunin bendir sérstaklega á að við slíka þéttingu í grónu hverfi þurfi að leggja mat á afleiðingar á bílaumferð og almenningssamgöngur og telur að það hafi ekki verið gert með nægilega vönduðum hætti. Umsögnin leggur áherslu á að slíkar breytingar hafi áhrif á umferð á svæðum langt út fyrir einstaka byggingarreiti og að ekki sé nægilega sýnt fram á hvernig tekið verði á auknu álagi á gatnakerfi og samgöngur í heild.

Með öðrum orðum: Vegagerðin, sem ber ábyrgð á skipulagi og öryggi í samgöngum landsins, staðfestir þær áhyggjur sem íbúar hafa ítrekað bent á — að þetta sé ekki traust og vel undirbúið skipulag, heldur áform sem geta valdið auknu umferðarálagi og öryggisvanda.

  • Þéttleiki fyrirhugaðra byggingasvæða er margfaldur miðað við núverandi skipulag og gengur gegn eðli og anda Grafarvogs. Til dæmis er meðalþéttleiki ríflega 24,7 íbúðir á hektara í nýjustu tillögum en meðalþéttleiki Grafarvogs er um 8–11 íbúðir/hektara. Þetta er alls ekki í samræmi við hönnun hverfisins með dreifðri og fjölskylduvænni byggð.

  • Í áætlunum borgarinnar er gert ráð fyrir að stór hluti nýrra íbúða í Grafarvogi verði félagslegt eða óhagnaðardrifið húsnæði, í samstarfi við félög eins og Félagsbústaði, Búseta og Bjarg. Þrátt fyrir mikilvægi fjölbreyttra húsnæðisforma, veldur svo mikill þungi slíkra íbúða á einum stað hættu á félagslegri einhæfni og misskiptingu milli borgarhluta. Hlutfall félagslegra og óhagnaðardrifinna íbúða í Grafarvogi er nú þegar hærra en í mörgum öðrum hverfum borgarinnar. Það er ekki ásættanlegt að einangra félagslegt og óhagnaðardrifið húsnæði á fáum stöðum í úthverfum. Slík samþjöppun getur grafið undan félagslegri fjölbreytni og samhengi hverfisins.

  • Það eru aðrir og betri kostir í boði til íbúðauppbyggingar í Reykjavík. Í Reykjavík eru þegar yfir 2.500 tómar íbúðir samkvæmt nýjustu talningu HMS. Næg byggingarsvæði eru í landi borgarinnar í hverfum sem ekki eru fullbyggð í dag.

Ég krefst þess að Reykjavíkurborg endurskoði þessi áform í heild sinni. Það þarf að virða sérstöðu Grafarvogs, vernda græn svæði sem gera hverfið aðlaðandi og lífvænlegt, og leggja áherslu á að styrkja innviði sem nú þegar ná ekki að sinna þörfum íbúanna. Aðeins þannig verður hægt að tryggja sjálfbæra og skynsamlega þróun hverfisins og borgarinnar – til framtíðar.

Ég áskil mér allan rétt til að koma með frekari athugasemdir, andmæli og sjónarmið á síðari stigum málsins, bæði í gegnum opinberar athugasemdir og með öðrum lagalegum og stjórnsýslulegum leiðum.

Þetta á við hvort sem um er að ræða breytingar á deiliskipulagi, grenndarkynningu eða byggingarleyfisferli.